Welcome to the biscuit, bitch
18.03.2007 10:08:35 / Halldóra

"Grace Kelly" - Mika

Jæja, þá er helgin því miður á enda og leiðinda skólavika að hefjast. Ég er samt veik í dag, og það gæti verið að ég mæti ekki á morgun í skólann nema í prófið sem ég á að taka. En samt annars verður þessi vika ömurleg, próf, tímaritgerð og fyrirlestrar. Það gæti ekki orðið leiðilegra. Ég er aðallega kvíðin fyrir tímaritgerðinni sem er á fimmtudaginn í spænsku, ég er bara búin að lesa 2 kafla í bókinni og er ekkert búin að undirbúa mig :S

Helgin var ágæt, á föstudaginn var ég aðallega bara að glósa og prenta út glósur upp á bókasafni, og ekkert meira en það. Í gærkvöldi fór ég fyrst til Laufeyjar en var þar nú stutt, ekki meira en 20 mínútur held ég. Síðan fóru ég, Alenka, Valgerður, María og Elín niður í bæ í afmæli hjá Ingibjörgu klappstýru. Þetta var ágætis kvöld en samt gat ég ekki beðið eftir að komast heim bara að sofa um 2, nenndi ekki að vera í bænum lengur, ég var orðin mjög þreytt.

Valgerður og ég 17.mars

Ég var að vakna fyrir um klukkutíma, skil ekki afhverju ég vaknaði svona snemma, en best að fara byrja þá bara að læra, ég vil fá hærra en 7 á morgun, eða ég ætla allavega að reyna.

Bless í bili, Halldóra

Ég og Nemo 17.mars


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 14:52:45 / Halldóra

Komin aftur

Það er sama hvað ég hætti oft að skrifa á þessari blessuðu síðu minni, þá langar mig alltaf ólm að byrja aftur að skrifa :) Ég ætla samt ekki að skrifa mikið núna, ég ætla aðeins að fara uppfæra síðuna þar sem margt hér er orðið úrelt og svona.....;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 10:40:52 / Halldóra

Ný síða ;)

Hæhæ ég var að fá mér nýja síðu www.halldorabjorg.bloggar.is endilega kíkið á hana ;) Mig langaði svo að prufa bloggar.is kerfið :) Tékk it out www.halldorabjorg.bloggar.is See Ya!

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 15:24:07 / Halldóra

"Praise you" - Fatboy Slim

Ahh það eru bara 4 vikur eftir af skóla:D ef þar að segja ég tel ekki páskafríið og prófin með....Annars er ekki mikið að frétta af mér. Mér einfaldlega leiðist bara núna. Seinustu helgi, (ekki þessi sem var að ljúka), þá héldu þær Laufey og Ásdís upp á 18 ára afmæli sitt þann 18. mars, kjúl, dagsetningin passar við:D Og var það bara geðveikt fjör. En vá hvað allir eru eitthvað að verða gamlir, við að verða 18 ára, síðan er elsti sonur systur minnar Arnór að fara fermast8| We're all getting so old:cry:



Núna er líka fermingartíðin byrjuð, og ég var að flokka skeyti á sunnudaginn, fun fun fun8| En út af því að síminn er hættur með þetta þá er ég ekki að vinna með pabba, en er hjá póstinum, en þetta er sama vinnan þrátt fyrir það.

Dí maður ég veit ekkert hvað ég á að blogga um, mér bara leiðist svo og ég er ekki að nenna að fara læra....æjj blogga aftur þegar ég hef frá einhverju að segja...;)

Kv. Halldóra


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 12:18:05 / Halldóra

"Anything but ordinary" - Avril Lavigne

Jæja bara kominn þriðjudagur...Ég er bara nýkomin úr skólanum, það er einhverjir Sæludagar í FB, og ég er ekki að nenna að mæta á eftir, ó nei, ég hefði hvort eð er verið búin klukkan 12, og ég skráði mig í einhvern lærdóm, en mér er nú alveg sama þótt ég missi nú af því. En á morgun skráði ég mig bara að horfa á video, Resevoir dogs og Pulp Fiction, það ætti nú ekki að vera leiðilegt, að losa sig við nokkur skróp bara við að horfa á videó.

Annars hélt hún Agnes upp á afmælið sitt á laugardaginn, og mættu allir í búningum og fóru klukkan 12 á Grímuball í Hlégarði. Þetta var bara mjög skemmtilegt, reyndar fannst mér ballið ekkert sérstakt, en ágætt. Mér fannst samt svo gaman að vera í búningum, minnir mig á þegar ég var lítil á öskudaginn. Ég var allavega kisi á laugardaginn, og var ekki ein um það, það voru nokkrar kisur, mjá. Ég tók ekki með mér myndavélina, Óli hirti hana af mér, en ég tók fáeinar áður en ég fór og þegar ég fékk hana aftur seinna um kvöldið, þannig ég get ekki sýnt ykkur margar myndir.

Kristín kisa:)

Einar og María

Og síðan tvær aðrar kisur, Laufey og Ásdís:)

Úú í gærkvöldi horfði ég á Óskarinn, og auðvitað vann uppáhalds leikkonan mín, Reese Witherspoon, best actress dæmið:D Hún átti þetta svo þokkalega skilið:!: En ég var samt pínu fúl yfir því að Joaquin Phoenix hafi ekki unnið besti leikari, og Jake Gyllenhaal besti leikari í aukahlutverki:| Síðan vann íslenska stuttmyndin ekki.

Reese Witherspoon Best Actress -

Reese Witherpsoon með óskarinn


Líka í gærdag komu mamma og pabbi frá Danmörku, þau fóru út í tilefni af því að pabbi varð 60 ára á sunnudaginn, og við börnin hans og barnabörn tóku á móti honum með smá surprise afmæliskaffi í gær, sem hann átti engan veginn von á.

Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra, until next time....adios Halldóra:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 14:47:26 / Halldóra

"Island in the sun" - Weezer

Funny Phrases

Jæja ég ætla aðeins að fara bæta mig í blogginu...hef ekki verið dugleg við það upp á síðkastið. Annars er ekki mikið að frétta af mér, ég er svo boring manneskja, ég sit alltaf bara heima að lesa bækur fyrir skólann. Ég hef reyndar aldrei verið svona dugleg við að læra áður. Ég er búin að vera lesa bók í ensku, Don't look behind you, og áður fyrr í grunnskóla og borgó las ég aldrei heima, en núna hef ég alltaf lesið, og hef fengið 10 í öllum smáprófunum:D En já annars gengur mér bara vel í flestum fögunum, nema stærðfræðinni, ég á svo pottþétt eftir að falla, ef þar að segja ef ég fæ ekki aukakennara á næstunni.

Það er búið að vera svo geðveikt veður seinustu daga, okei kannski kalt, en samt sól og þannig:) Mér hlakkar líka svo til sumarsins..Can't hardly wait.



Ég væri til í að vera á þessari strönd núna8)

Æjj ég hef engu að segja frá því ég hef ekki verið að gera neitt upp á síðkastið, vonandi verður helgin ekki eins leiðileg og vikan...eða ég læt það bara ekkert gerast;)

En nóg af þessu crapi..kv. Halldóra
Nature

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 12:01:53 / Halldóra

"Free bird" - Lynyrd Skynyrd

Hæhæ, æjj mér leiddist svo og hafði ekkert að gera þannig að ég var að taka svona ýmis próf á einhverri síðu sem ég fann á netinu... reyndar skemmtileg próf, en ég hef ekkert mikið að segja frá þannig að ég set bara nokkrar af niðurstöðum mínum. Og ég set líka tengla hjá, þannig að þið getið líka tekið prófin;)

Hillbilly Name Generator

Your Hillbilly Name Is...
Betty Sue Duke

What Kind of Drunk Are You?

You're a Wild Drunk
You can get enough drink. Seriously, you'll just go puke and start pounding them back again!

What Animal Were You In a Past Life?

You Were a Dog
You are an excellent companion and a loyal friend.
A good protector, you smell trouble before it arrives.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 16:48:15 / Halldóra

"Til hamingju Ísland" - Silvía Nótt

Ok þetta er án efa ábyggilega vinsælasta lagið á Íslandi í dag, Til hamingju Ísland, á hverri einustu blogg síðu sem ég skoða er lagið hennar Silvíu þar. Þetta er líka geðveikt lag:D og bara verður að fara í Eurovision;)

En þá er sumarbústaðaferðin búin, og var bara alveg helvíti gaman hjá okkur. Bústaðurinn var rétt hjá Laugarvatni en er ekki alveg viss hvað staðurinn heitir. Við mættum á föstudeginum og var fyrsta kvöldið bara mjög skemmtilegt og kósý, fórum í heita pottinn, reyndar fór ég ekki í hann fyrr en 2 klst. eftir þeim, en þrátt fyrir það fannst mér ég vera frekar lengi, 2 klst. en þær stúlkur voru í heila 4 klst. í pottinum8| En það var spjallað og allar á trúnó, og gekk á ýmsu. Síðan þegar við fórum upp úr, horfðum við á þarna dvd diskinn af afmæli Laufeyjar 2004;) Ojj þegar ég fór upp í pottinum, þá rann ég og datt á pallinum:S ekki þægilegt. Næsta morgun vaknaði ég kl.98| en samt sofnaði ég ekki fyrr en minnir mig hálf 5 um nóttina, samt var ég bara frekar hress og fór bara eitthvað að læra, fyrst að ég var ein vakandi og hafði ekkert betra að gera. Beið eftir að hinar myndu vakna sem þær loksins gerðu kl. 12. Við borðuðum morgunmat, og fórum á Selfoss, bara eitthvað að slugsast, redduðum meira af áfengi og fórum á kfc. Síðan er við komum aftur upp í bústað, lögðu sig allar og um 7 var farið að undirbúa kvöldmatinn. Síðan spiluðum við bara og horfðum á eurovision, og djö. var hún Silvía flott upp á sviðinu, hún bara verður að komast áfram:!: Jæja, síðan komu krakkar úr næsta bústað yfir, varð reyndar svolítið mikið drama í gangi, en nenni ekkert að fara nánar út í það. Ég hitti reyndar eina stelpu úr Dale C. Elínu I., hún var þá einmitt í hinum bústaðnum, og var bara gaman að hitta hana. En annars síðan var ég sett í háttinn, já mér var ekki leyft að vaka lengur:$ og mér leið ekki svo vel daginn eftir:( Fer ekkert nánar út í það. Já, það var bara svona ferðin í grófum dráttum...

Þetta eru lögin, þegar ég mun heyra þau í framtíðinni á ég alltaf eftir að minnast um þessa ferð;)
  • Silvía Nótt : Til hamingju Ísland
  • Mr. Big : To be with you
  • Tælendinga lagið (Tælenski strákur)
  • Bubbi : Mýrdalssandur

En jámm þannig var nú helgin mín, og thank god að það styttist í þá næstu. En ó já, ég fór á þriðjudaginn í bíó, með Alexsöndru og Telmu, á Walk the line, og þetta er bara geðveik mynd. Hún er svo góð, allt við hana er flott, sérstaklega tónlistin, og líka leikararnir, Joaquin og Reese. Ég er núna með æði fyrir lögunum hans Johnny Cash;) Þau eiga svo óskarinn skilið og eiga ábyggilega eftir að vinna hann bæði tvö, en ég er samt hneyksluð á því að myndin sjálf hafi ekki verið tilnefnd sem besta bíómyndin8| Ég er ekki alveg að skilja það....en ég mæli allavega 100% með henni:D

Reese Witherspoon and Joaquin Phoenix star as June Carter and Johnny Cash in 20th Century Fox's Walk the Line

Jámm, ég er ætla að kalla þetta gott í dag.....kv. Halldóra:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 16:44:11 / Halldóra

"Soul meets body" - Death cab for cutie

Bara vikan hálfnuð, tíminn er svo fljótur að líða...en í dag fékk ég einkunn úr spænsku prófi sem ég var í á mánudaginn, og ég fékk bara 3,68| Ég hélt fyrst að ég hefði lært svo vel fyrir prófið, greinilega ekki, en ég læri bara af mistökunum;) En úú, það var íslensk stuttmynd tilnefnd til Óskarsverðlauna, Síðasti bærinn í dalnum, hún var tilnefnd í einhverjum stuttmynda flokki, don't remember.

Hey annars ég var að komast að því fyrir nokkrum vikum að ég eigi frænku sem er hálfur Íslendingur en býr í Oregon, Bandaríkjunum og hún er þekkt módel allavega í tískuheiminum. Hún heitir Nina Smidt, amma hennar og afi minn voru systkin. Ég hef sjálf aldrei hitt hana, en hún á víst að vera indæl manneskja.

Þetta á víst að vera hún

Ég hlakka svo til helgarinnar, ég fæ frí í fyrsta tímanum á föstudaginn, kennarinn þurfti frí eða eitthvað og ég er ekkert að kvarta yfir því, en það þýðir að ég þarf ekki að mæta fyrr en klukkan hálf 12, og ég er búin um hálf 1:) ég vona að hinn kennarinn verði líka veikur, þá fæ ég frí allan daginn;) Lengri helgi hjá mér...samt ekkert endilega, því helgin er alltaf svo ógeðslega fljót að líða, einum of fljót. Jebb, mig langar að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, nenni ekki að sitja og horfa bara á sjónvarpið eins og ég gerði seinustu helgi8|

Jæja, ég setti upp nýja skoðanakönnun, please vote;) En samkvæmt gömlu könnuninni var You're beautiful með James Blunt besta lag ársins 2005:D

 



Atkvæði : 25

En ég ætla að segja þetta nóg í bili, mig langar aðeins að leggja mig...en endilega kvittið í gestabókina eða tjáið skoðun ykkar hérna;)...kv. Halldóra


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 13:25:25 / Halldóra

"Watching the wheels" - John Lennon

Ahh laugardagur, frí, afslöppun:) En ég er nú samt pínu veik, fékk fyrst kvef á þriðjudaginn og síðan fór það pínu versnandi, en ég ætla bara að hafa það rólegt fyrir heima og ná þessu úr mér um helgina. En ég þarf einnig að læra um helgina fyrir spænsku og dönsku próf á mánudaginn, sömuleiðis íslensku próf á þriðjudaginn, úr Völuspá:S

Síðan er Sandra komin með bílpróf:) Til hamingju með það Sandra. Og í tilefni þess fór ég með henni og Alexsöndru á rúntinn í gærkvöldi, og þegar ég kom heim, um svona 12 leitið, sofnaði ég bara nánast strax, ég var bara gjörsamlega dauð eftir vikuna, ég er nefnilega búin að vera svo helvíti duglega að læra:lol: og ég er ekkert að fara breyta því neitt, eru að koma próf og svona. En annars fór ég áðan aðeins í smá æfingarakstur með pabba, ég verð að fara drífa þetta bílpróf af, ég er farin að fá samviskubit yfir þessu:(

Á fimmtudaginn fór ég með Alenku og Maríu að sjá Brokeback Mountain. Þetta var góð mynd, mæli allavega með henni, en maður verður að vera í stuði fyrir henni, hún er frekar pínu langdregin en samt alveg fín. En maður tók alveg eftir því að það voru engir, eða fáir ungir strákar á myndinni, ungir menn eru svo miklir homofobes.

Jake Gyllenhaal and Heath Ledger in Focus Features' Brokeback Mountain


P.S. LÁRA, MUNDU EFTIR AÐ LÆRA F. SPÆNSKU PRÓFIÐ;)

En nóg af þessu bloggi...kv. Halldóra


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 13:53:22 / Halldóra

"Blowin in the wind" - Bob Dylan

Jæja ég veit að ég hef ekki bloggað í langan tíma, en hef bara ekki nennt því:S En ég ákvað að gera það núna því það er enginn heimalærdómur í dag:) allavega ekki mikill. Annars það sem ég hef verið að gera síðastliðinn mánuð, ég er allavega byrjuð aftur í skóla:lol: en komin samt í nýjan, FB. Mér líkar mjög við það þar, Lára er sömuleiðis þar. Eins og er gengur mér vel.

Á sunnudaginn átti hún Alenka afmæli, orðin 18:) Og á laugardaginn vorum nokkrar þó fáar stelpurnar aðeins hjá Alenku í tilefni þess, borðuðum og eitthvað og fórum svo á Gaukinn þar sem fullt af mosfellingum voru, því systir Telmu, Beta, var einnig að halda upp á afmælið sitt þar. Við komum þar um svona hálf 12, en ég var ekki alveg að skemmta mér mikið þarna og ákvað bara að fara heim snemma, allavega undan hinum, um hálf 4. Ekki merkilegt þetta, og núna er bara komin önnur skólavika:S


Nenni ekki að blogga meira í dag.. kv. Halldóra

Sandra og ég:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 22:22:33 / Halldóra

Gleðilegt nýtt ár :)

Ég á erfitt með að trúa því að árið 2005 sé bara búið og 2006 komið:) Árið var bara heildina séð mjög fínt. Þetta er það sem stóð upp úr á árinu hjá mér. Ég man eftir í janúar hélt Alenka upp á afmælið sitt, það kvöld var mjög skemmtilegt og ég fór á Broadway með stelpunum, og komst inn á verstu skilríkjum (Kristín er ekki beint lík mér) og ég var búin að viðurkenna fyrir gaurnum í miðasölunni að þetta væri ekki ég, samt hleypti hann mér inn8| Í febrúar var ég hjá einkaþjálfaranum og fór í afmæli hjá Kristíni og dró Agnesi með mér. Sömuleiðis fór ég á árshátíðina hjá ms, en það besta við febrúar var eigilega þegar ég missti teinana:haha: Í mars dró ég líka hana Ploy tælending með mér í afmælið hjá Laufey, ábyggilega skemmtilegasta lífsreynsla hennar á Íslandi;) Man síðan ekki eftir neinu sérstöku fyrr en bara þegar hún Ploy fór aftur heim til Tælands:( og kom og kvaddi mig í afmælinu hennar Maríu í júní. Síðan í byrjun ágústs fór ég til Krítar og var það það skemmtilegasta sem ég gerði á árinu:haha: Já æ síðan bara jólin og allt frábært:D

En annars voru jólin bara mjög kósý og sömuleiðis í gærkvöldi. Í gær, gamlárskvöld, vorum við fjölskyldan hjá Hrund og co. í Hafnarfirði. Borðuðum kalkún og svona. Síðan horfðum við á besta af stelpunum og strákunum og auðvitað Áramótaskaupið. Síðan var farið út að sprengja flugelda og þannig. Um 2 leitið í nótt stoppuðum við hjá Jóhönnu frænku, og gisti ég hjá Signý í nótt. Fórum ekki að sofa fyrr en klukkan 5 í nótt, því við vorum að horfa á Jackass the movie;) Og svo í "morgun" vaknaði ég kl. 38|

Fjölskyldan á jólunum

En annars er þetta blogg, fyrsta bloggið mitt á þessu ári, bara komið. Ég er búin að setja myndir frá jólunum og gamlárskvöldi inn á myndasíðuna mína, tékk it out;)

Annars bara Gleðilegt nýtt ár:D

Kv. Halldóra


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2005 14:08:55 / Halldóra

Gleðileg Jól

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár. Ég trúi því varla að aðfangadagur hafi verið í gær:D En dagurinn var bara mjög góður, hann byrjaði á því að ég vaknaði um 12 leitið fór í sturtu og um 2 fóru ég og pabbi í jólapakkaleiðangur, fórum með pakka til systra minna og frænku. Síðan vorum við komin heim um hálf 5, síðan voru bara jólin komin klukkan 6. Við borðuðum hamborgarahrygg eins og alltaf og drukkum jólaöl, mm ég elska jólamat. En síðan opnuðum við pakkana klukkan 8, og ég fékk mjög flottar gjafir, ég var ekkert smá ánægð með allt sem ég fékk. Svo eftir allt það, var bara frekar rólegt, horft á Forrest Gump og eitthvað. Síðan um 11 fóru ég og Baldur í Monopoly og vorum í því til klukkan hálf 4 í nótt8| En annars var aðfangadagurinn svona hjá mér:)



Systkinin, Baldur, ég og Óli:D

Vikan fyrir jól var ég nú bara að klára af alla pakkana, en seinustu helgi á laugardeginum var Dale Carnegie hittingur, og á sunnudaginn var afmæli hjá litla frænda mínum. Um sunnudagskvöldið fór ég með Alenku, Elíni og Valgerði á jólamynd í bíó, The Family Stone, ágæt jólamynd, en þetta var ekki mynd til að sjá í bíó frekar á videó. En hins vegar er King Kong mynd sem maður verður að sjá í bíó, ég fór á hana á þriðjudaginn með Alenku og hún var geðveik góð;)

Ég vaknaði áðan aftur um 12, og í hádegismat voru smábrauð og heitt súkkulaði, það er hefð að hafa þannig á jóladag í morgunmat. En í kvöld kemur fjölskyldan í jólaboð, hefð hérna að systurnar og co. komi hér á jóladag. Og núna langar mig að fara að spila kannski smá Monopoly;)

En annars bara Gleðileg jól og farsælt komandi ár:D

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 15:51:26 / Halldóra

8 dagar til jóla :)

Það styttist í jólin og ég er búin með jólahreingerninguna og búin að skreyta inn í herberginu mínu, ég á hins vegar flest allar gjafirnar eftir:| Búin með 4. Ég ætla í þann leiðangur eftir helgi, því það á pottþétt eftir að vera þvílíkt mikið að gera þessa helgi, seinasta helgi fyrir jól. Vá hvað það er stutt í jólin:)

Ég er nú samt ekki beint búin að vera gera eitthvað annað en að vera heima, en seinustu helgi var ég nú bara að jafna mig eftir aðgerðina og síðan núna í fyrradag sótti ég 3 seríu af O.C og er bara búin að vera með smá O.C. maraþon seinustu tvo daga:) Þriðja serían er miklu skemmtilegari heldur en önnur, miklu meira spennandi, get varla beðið með að horfa á næsta þátt.

Ú já, síðan áðan fór ég í leikfimi eftir að ég hafði ekki mætt 2 vikur8| En ég hafði misst 2 kg frá seinast:haha: Ég verðlaunaði mig með uppáhaldinu mínu kjúkling í barbíqú sósu, það er sko ekki svo fitandi, eða ég vona það.

En ég held að ég ætli að fara gá hvort ég geti ekki farið að sækja næsta þátt af O.C. ;)

Kv. Halldóra:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 20:03:01 / Halldóra

14 dagar til jóla ;)

Jey það eru bara 2 vikur til jóla:lol: Ég er svo spennt:!: Ég er loksins búin í aðgerðinni, og er sársvöng núna, því ég hef ekkert borðað síðan á miðvikudaginn, búin að vera lifa á drykkjarjógúrti síðan á fimmtudaginn8| Ekki beint mikil næring, en ég held að ég megi fara borða eftir helgina, kannski jafnvel núna en ég bara þori því ekki fyrr en ég er búin að tala við tannlækninn og það er auðvitað lokað á stofunni yfir helgina.

Seinustu helgi fór já fjölskyldan á jólahlaðborð á Kaffi Reykjavík og var það bara rosa nice:) Mjög góður matur, mm.

Systurnar, Hrund, Margrét og ég á jólahlaðborðinu:D

Þessa helgi hef ég nú bara verið að taka því rólega, setið við sjónvarpið og þannig. Hef því ekkert mikið að segja frá. Hey jú, getiði hver er Miss World 2005;) Ísland vann, eða Unnur Birna vann Miss World í dag.

Ég hef eigilega ekkert meira að segja frá, so....

Kv. Halldóra:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti